Oft á tíðum eru verðlaun og viðurkenningar sem veitt eru þvílík yfirborðsmennska að hið hálfa væri nóg. Nægir að nefna fjölmörg verðlaun útrásarvíkinganna íslensku því til sönnunar en flestir hinna fordæmdu fjármálasnillinga státa af þessum fínu riddara- og stórriddaraorðum forseta vors.

Hótel sem gerir meira. Scandic hótelkeðjan rekin á öðrum og betri forsendum en margar aðrar. Mynd Scandic

Hótel sem gerir meira. Scandic hótelkeðjan rekin á öðrum og betri forsendum en margar aðrar. Mynd Scandic

Nú hefur Norðurlandaráð þó veitt hótelkeðjunni Scandic sérstök náttúru- og umhverfisverðlaun og sé rýnt í rökin fyrir því er ekki annað hægt að þykja mikið til koma hvað forráðamenn þeirrar keðju láta sig umhverfið okkar miklu varða.

Var það til að mynda Scandic sem hóf þá tilraun að hótelgestir sjálfir ákvæðu hvort þrífa þyrfti handklæði daglega en sú tilraun heppnaðist svo vel að velflest betri hótel heims bjóða nú þann möguleika. Scandic var einnig fyrsta hótelkeðjan sem notaðist við fljótandi sápu sem er vistvænni en hefðbundin sápa.

Þá hafa einnig velflest hótel keðjunnar verið byggð úr svokölluðum sjálfbærum byggingarefnum og hafa þess vegna 114 hótel af 147 alls fengið hina eftirsóttu norrænu svansvottun.

Ekki nóg með það heldur býður Scandic aðeins upp á lífrænt kaffi, selur ekki vatn úr plastflöskum og svo má áfram telja.

Er því full ástæða til að hafa Scandic í huga þegar bókuð eru hótel erlendis þó ekki sé nema vegna þess að að þeir ganga lengra en margir aðrir til að varðveita náttúru okkar allra og heimta ekkert hærra verð fyrir en samkeppnisaðilar sem gera það ekki.