Tíðindi

FÍB kort sparar helling í Flórída

  06/08/2012janúar 12th, 2014No Comments

Félagar í Félagi íslenskra bifreiðareigenda geta sparað sér góðan skilding á þeirri aðild úti í Bandaríkjunum. Það helgast af því því að systurfélag FÍB vestanhafs, AAA, veitir margvíslega afslætti og aðstoð fyrir erlenda ferðalanga þar í landi.

Athugull lesandi Fararheill sparaði sér þannig töluverðar upphæðir og biðtíma með því að nýta sér afslætti og kjör AAA þegar sá var á ferðalagi um Orlando í Flórída. Með stoppi og framvísum FÍB kortsins á skrifstofu AAA í Orlandoborg gat sá fengið vikumiða í helstu afþreyingargarða í grennd með verulegum afslætti miðað við verð í miðasölum garðanna.

Eins og Fararheill hefur greint frá er hreint ekki ódýrt að fara með fjölskylduna í stærri skemmtigarða Flórída.

Segir viðkomandi þó að slíkt borgi sig aðeins sé hugmyndin að eyða meira en einum degi í hinum frægu skemmtigörðum Flórída.

Ýmisleg önnur þjónusta er í boði fyrir FÍB félaga gegnum AAA og líklegt að ársgjaldið sé fljótt að borga sig sé hugmyndin að þvælast um Bandaríkin á bíl.

Sjá nánar á vef FÍB hér.