Tíðindi

Milljón sæti hjá Ryanair

  10/03/2009maí 11th, 2014No Comments

Lággjaldaflugfélagið Ryanair býður eina milljón sæta til margra af vinsælustu áfangastöðum sínum á tíu pund næsta sólarhringinn aðra leiðina frá London. Gera það 1.543 krónur miðað við gengi dagsins og því allbærileg kaup.

Fjölmargir áfangastaðir eru í boði en hafið í huga að Ryanair er alræmt fyrir aukagjöld ýmis konar og má gera ráð fyrir að viljir þú taka eina tösku með þér í fríið bætist annar 1500 kall við hið minnsta.

Sjá nánar á heimasíðu Ryanair hér.