Tíðindi

Götulistahátíð í Kaupmannahöfn um helgina

  05/05/2011febrúar 4th, 2014No Comments

Allir sem dvalist hafa í lengri eða skemmri tíma í Danmörku vita að heimamenn kunna að skemmta sér og öðrum og það án þess að allt leysist upp í slagsmál og tóma vitleysu eins og raunin er oft á tíðum annars staðar.

Óhætt er því að mæla með við alla þá sem dvelja í höfuðborginni dönsku um næstu helgi að leggja leið sína til Blågårdsgade. Sú liggur út frá Nørrebrogade sem velflestir þekkja sem til Kaupmannahafnar koma en þar fer fram mikil götuhátíð á laugardaginn kemur.

Hefst veislan fyrir hádegi þegar leikhópar nokkrir sýna leikni sýna auk þess sem lítill sirkus verður opinn smáfólkinu. Fyrir unglingana verður vinsæll plötusnúður á svæðinu og spilar fyrir lipra fætur.

Nokkrir smærri markaðir opna á sama tíma og geta borgarbúar þar keypt nýja ávexti og annað góðgæti. Að auki verður flóamarkaður starfandi allan daginn.

Tónlistarmenn verða á vappi allan daginn og þar á meðal nokkrar af vinsælli hipp-hopp grúppum Dana. Sú stemmning mun lifa fram eftir nóttu og ætti að vera danshæft í götunni vel framyfir miðnætti.