Ritstjórn Fararheill hefur áður undrast gríðarlegar verðsveiflur daga á milli á flugferðum til eins og sama áfangastaðarins hjá flugfélögunum Icelandair og Iceland Express.
Á vef Icelandair má nú meðal annars sjá eitt slíkt undarlegt dæmi. Þar kostar flugfar fyrir einn einstakling aðra leiðina til Alicante á Spáni í júlí á ódýrasta farrými minnst 36.730 krónur þann 6. júlí.
En detti einhverjum í hug að 10. júlí sé vænlegri dagur til Alicante ferðar þarf viðkomandi að punga út 91.950 krónum fyrir nákvæmlega sömu fjögurra klukkustunda ferð. Eins og sjá má á meðfylgjandi skjámynd er þó slatti eftir af sætum á ódýrasta farrými.
Mismunurinn er 55.250 krónur.
Sömu sögu er að segja vilji sami einstaklingur komast heim á ný frá Alicante. Ódýrasta fargjaldið í júlímánuði til baka kostar 34.830 krónur þann 20. júlí en dýrast er að fara heim þann 17. júlí þegar miðaverðið er í 78.190 krónum.
Vitaskuld er flugfélagið að hámarka arðsemi sína á háannatíma til og frá vinsælum áfangastað en 50 til 60 þúsund króna munur virðist ansi vel í lagt í stuttri flugferð.






