Af öllum þeim hættum sem fylgja ferðalögum fólks um víða veröld er ekkert sem kemst með tærnar þar sem umferðarslys hafa hælana. Hvorki fleiri né færri en 25 þúsund einstaklingar láta lífið í umferðarslysum árlega í fjarlægum löndum.

Snöggur og hörmulegur endir verður á ferðalögum þúsunda manna árlega

Snöggur og hörmulegur endir verður á ferðalögum þúsunda manna árlega

Koma tölurnar frá FIA Foundation í Bretlandi sem eru góðgerðarsamtök sem beita sér fyrir bættri umferðarmenningu í heiminum öllum. Vara samtökin við því að með fyrirsjáanlegri helmings aukningu ferðamanna í heiminum á næstu tíu árum aukist hættan samsvarandi að banaslysum fjölgi til muna nema til aðgerða sé gripið.

Þannig eru þær ógnir sem ferðamenn sjálfir hafa oftast áhyggjur af tiltölulega lítilvægar í samanburði við umferðarslys. Morð, flugslys, sjúkdómar eða drukknun eru langt á eftir slysum á vegum í ferðalögum á heimsvísu.

Bandarísk yfirvöld hafa sérstaklega varað ferðafólk við löndum á borð við Hondúras, Mexíkó, Tæland og Víetnam þar sem dauðsföll bandarískra þegna í umferðinni er hátt yfir meðaltali annarra landa.  Hættan er þó ekki einskorðuð við þessi lönd þar sem vegagerð er kannski vart upp á marga fiska. Fjölmargir Bandaríkjamenn láta lífið á vegum á Spáni og Ítalíu árlega líka.

Er líka skemmst að minnast þess að tveir Íslendingar létu lífið í hörmulegu umferðarslysi í Tyrklandi fyrir ekki löngu og sömuleiðis tveir í Alicante. Það er stór tollur hjá lítilli þjóð.10