Enn einu sinni er vefur Wow Air niðri og hefur verið um hríð í dag. Óskiljanlegur kóði mætir fólki sem hyggst gera sér góðan dag og panta ferð af klakanum.

Hugmyndin var að sjoppa ferð til Berlínar en við skiljum ekki þennan kóða sem ber fyrir augu fólks sem ætlar á vef Wow Air þessa stundina. Skjáskot
Það er ósköp eðlilegt að bloggvefur Tyrfings Jónassonar frá Breiðabóli í Vatnsvík sé úti endrum og sinnum en furðulegt er að söluvefur annars stærsta flugfélags Íslands sé úti aftur og aftur og það í langan tíma í senn.
Vefur Wow Air fór algjörlega á hvolf fyrir skömmu þegar fyrirtækið auglýsti tilboðsferðir vegna tveggja ára afmælis. Þá var bið lunga úr heilum degi sem er það versta. En það er töluvert vesen þess utan og reglulega eins og í dag. Við höfum ekki komist inn á vefinn í vel rúma klukkustund.
Við þykjumst vita að þetta sé með ráðum gert til að ritstjórn Fararheill geti ekki gert verðkönnun. En að gamni slepptu þá er þetta dapurt stöff hjá flugfélagi sem vill láta taka sig alvarlega.







