Þó engar tilkynningar finnist um slíkt er næsta víst að Wow Air mun hætta flugi til New York og Dallas í ofanálag við þær fregnir fyrr í vikunni að reglulegu áætlunarflugi til St.Louis, Cincinnati og Cleveland yrði fljótlega hætt.
Það skýrist einfaldlega af þeirri staðreynd að ekkert flug er í boði til Dallas eða New York frá næstu mánaðarmótum á vef Wow Air eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskotum af vef flugfélagsins.
Ekki svo að skilja að ekki sé komist með Wow Air áfram til New York því félagið flýgur áfram til New Jersey sem er næsti bær við New York.
En Dallas virðist heldur ekki hafa verið að gera sig fremur en Cincinnati, Cleveland eða St.Louis. Og kemur engum hér á ritstjórn á óvart eins og við höfum bent á áður.







