Eigi landsmenn pening á bók og geti skroppið í frí með litlum eða engum fyrirvara er margt í boði þessa vikuna. Hraðtilboð Icelandair poppaði upp fyrr í vikunni, Úrval Útsýn og Heimsferðir með tilboð á ferðum til suðrænna stranda og ekki má gleyma Wow Air sem býður nú ferðir í karabíska á tilboði.

Hmmm. Eitthvað skolast til hér hjá Wow Air.
Efalaust margir spenntir fyrir eyjum karabíska í vetur og hvenær hefur verið tilboð á beinu flugi þangað héðan. Svarið er aldrei og svo er heldur ekki nú.
Textahöfundar fréttabréfs Wow Air eru hins vegar harðir á því að spænska eyjan Tenerife sé staðsett í Karíbahafinu eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti.
Okkur vitandi hefur staðsetning Tenerife úti á Atlantshafi ekki breyst neitt. Né heldur er sjórinn við Kanaríeyjarnar kristaltær og hann gerist við karabísku eyjarnar.
Landafræðinámskeið kannski jólagjöfin til starfsmanna þetta árið….







