Wow Air hættir öllu flugi til Dallas, Cleveland og Cincinnati í Bandaríkjunum síðla í október og setur allt flug til JFK-flugvallar í New York á ís á sama tíma. Þá bólar ekkert á flugferðum til Miami á nýjan leik eins og tilkynnt var í vor.

Töluvert fækkar áfangastöðum Wow Air vestur um haf á næstunni. Skjáskot
Tímarnir breytast og leiðakerfi flugfélaga með. Nú er orðið ljóst að Wow Air hyggst ekki halda áfram með áætlunarflug til Dallas, Cleveland og Cincinnati vestanhafs ef marka má bókunarmöguleika á vef flugfélagsins. Til þessara staða aðeins hægt að bóka fram í október og síðan ekki söguna meir.
Að sama skapi hefði einhver getað búist við að áætlunarflug til Miami væri á ný komið í leiðakerfi Wow Air en þegar því flugi var hætt í vor var talað um að Miami yrði aftur í boði með haustinu. Miami finnst þó hvergi á bókunarvél flugfélagsins þó komið sé að hausti og verður því ábyggilega ekki í boði aftur að svo stöddu.







