„Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni verður hætt við flug til Nýju Delí 20. janú­ar, en flug þangað hófst á dög­un­um.”

Hætta flugi til Indlands? Ekki er það að sjá á bókunarvef Wow Air. Skjáskot

Ofangreint hefur Morgunblaðið úr fréttatilkynningu Wow Air frá því í morgun en sem kunnugt er hefur flugfélagið sagt upp miklum fjölda starfsmanna og hyggst rifa seglin allverulega næstu misserin.

Gott og blessað. Nema kannski að leita fólk að flugi til eða frá Nýju-Delí á vef Wow Air virðist í boði að bóka flug fram í október á nýju ári! Okkur hér gekk bara vel að bóka flug til Indlands í júní næstkomandi og heim aftur í júlí.

Sem auðvitað er flókið að bjóða ef Wow Air er raunverulega að losa sig við breiðþotur sínar eins og fréttir gefa til kynna. Aðrar rellur geta ekki flogið alla leiðina án millilendingar.

Óskandi væri að við gætum veitt lesendum okkar ítarleg svör en því ekki til að heilsa. Fararheill á svörtum lista forráðamanna Wow Air og hefur verið um fjögurra ára skeið. Við fáum því engin svör við fyrirspurnum okkar.

En í guðanna bænum ekki bóka til Indlands næsta vor og sumar…