Þeir eru fáir undir fertugu í hinum vestræna heimi sem ekki þekkja tölvuleikina Warcraft og Starcraft enda um árabil verið með allra vinsælustu leikjum. Nú er í smíðum stór skemmtigarður í Kína sem hefur leikina sem fyrirmynd án þess þó að hafa hlotið opinbert samþykki leikjaframleiðandans.
Skemmtigarðurinn, World Joyland, er í smíðum í Changzhou í Kína og voru það myndir frá vettvangi sem ollu furðu þeirra sem sáu þar sem líkindin við byggingar í umræddum leikjum þóttu merkilega mikil.
Er augljóst að leikirnir eru fyrirmynd að nokkru leyti þó þeir kínversku neiti því alfarið.






