J abbadannadona! Á dauða okkar áttum við von en ekki að fá skeytið hér að neðan frá Páli nokkrum. Sá líklega ekki stúderað skrif okkar síðastliðin tólf ár í þaula því spurning hans er kjánaleg í fimmta veldi.

„Sæl hver sem þið eruð hjá Fararheill. Rakst á vef ykkar fyrst í vetur og skoða nú daglega enda margt forvitnilegra greina um hina og þessa staðina og ábendingar ykkar eru almennt góðar. En ég get ekki orða bundist yfir fjölda þeirra greina sem gera lítið úr ferðaskrifstofum og flugfélögum. Sér í lagi virðist ykkur í nöp við Icelandair, ekki farið fögrum orðum um þetta nýja Play-flugfélag og blótsyrðin um sumar ferðaskrifstofurnar og eigendur þeirra eru mér ekki að skapi. Mér finnst stundum eins og þið séuð að ganga erinda einhverra aðila en sé samt ekki fyrir mér hverjir þeir gætu verið. Er það raunin svo ég spyrji nú bara blátt út?”

Þó hissa séum þá tökum við skeyti Páls fagnandi. Almenningur á að hafa varann á sér gagnvart fjölmiðlum og bloggum á þessum tímum og jafnvel ganga út frá því að duldir hagsmunir liggi að baki margra þeirra. Því það er einfaldlega staðreynd og nægir að líta á Frétta- eða Morgunblaðið sem góð dæmi um slíkt. Þar eru það ekki blaðamennirnir sem ráða því hvað ratar á síðurnar eða vefinn né síður að fréttir þeirra séu gegnheilar eða almenningsmiðaðar heldur stjórar og eigendur með aðra hagsmuni en almennings í huga. Góðu heilli er almenningur að sjá gegnum það enda bæði blöð að deyja drottni sínum.

Þá að svörum okkar hér:

A) Engir duldir hagsmunir, hafa aldrei verið og munu aldrei verða. Punktur! Engar auglýsingar, ekkert fiff og ekkert svindl. Við vinnum ekki fyrir neinn nema ferðaþyrsta einstaklinga. Allt efni er skrifað fyrir almenning á eins einföldu og skiljanlegu máli og framast er unnt og við köllum þetta ekki einu sinni vinnu því við elskum ferðir og elskum að deila. Við skrifum eins og við tölum, án málskrúðs, því þannig á nútíma fjölmiðill að vera til að ná útbreiðslu meðal mismunandi fólks. Við skrifum um ferðalög af því að við elskum ferðalög en ekki að beiðni einhvers eða einhverra.

B) Hörð orð um ferðaskrifstofur og flugfélög ættu að vera normið hjá fjölmiðli sem starfar í þágu almennings. Þau hafa mörg hver staðið sig illa, og sum mjög illa, og hvers vegna klæða slíkt í fagra kápu? Þegar keisarinn spásserar um nakinn en þykist klæddur í dýrindis Gucci klæði verða fjölmiðlar að benda á það augljósa. Annars eru þeir ekki fjölmiðlar.

Takk fyrir skeytið Páll. Hárrétt hjá þér að hafa efasemdir og takk fyrir að hafa hugrekki til að spyrja bara hreint út. Stundum þarf ekkert annað 🙂