Flugfélagið Wow Air auglýsir nú sérstök vinatilboð á ferðum til Barcelóna, Mílanó og Alicante og er samkvæmt því hægt að fljúga á þessa staði í vor fyrir allt niður í 17.895 krónur.
Tilboðin eiga að gilda næstu 48 stundir að því er fram kemur í tilkynningu flugfélagsins.
Alltaf gott að greiða minna fyrir flugferðir en kannski má setja út á, sem áður, víðan tímaramma Wow Air. Samkvæmt auglýsingunni er Barcelóna í boði frá 30.maí til 20. júní aðra leiðina fyrir 19.985 krónur. Við leit klukkstund eftir að tilboðið hófst finnst þetta verð aðeins 16., 18. og 20. júní
Til Mílanó er komist líka og það á 17.985 krónur aðra leið án farangurs og auglýst frá 31.maí til 21. júní. Þar finnast þó aðeins þrjár dagsetningar líka; 3., 7. og 14. júní.
Þriðja borgin á tilboði er svo Alicante og á þangað að fást flug frá 19.985 krónur án farangurs frá 22. maí og fram til 21. júní. Það er fjarri lagi þegar þetta er skrifað klukkustund síðar. Aðeins finnast flug á þessu verði á tveimur dagsetningum, þann 3. júní og 21, júní.








