Flugmenn Icelandair hafa nú boðað til verkfalls en slíkt var samþykkt með yfirgnæfandi hætti af félagsmönnum Félags íslenskra atvinnuflugmanna sem flugmenn hjá Icelandair tilheyra.
Hefst verkfall þann 4. febrúar í tvo daga og svo aftur þann 11. febrúar í lengri tíma ef ekki semst fram að því. Þeir flugfarþegar sem miða eiga á þessum tímum fá engar skaðabætur en ættu samkvæmt lögum að fá miða sína endurgreidda eftir svokölluðum force majore reglum. Þær kveða á um að engin bótaskylda myndist við ófyrirsjáanlega atburði og eru verkföll hluti af því þó vart séu þó ófyrirsjáanleg.






