R úmum 30 árum eftir versta kjarnorkuslys sögunnar í Chernobyl í Úkraínu gefst meðaljónum nú tækifæri til að skoða sig um á vettvangi slyssins án þess að brjóta lög. Hafa þarlend stjórnvöld síðustu misseri og ár gefið leyfi fyrir ferðum á svæðið þrátt fyrir að þar mælist enn mikil geislavirkni.

Heillandi er ekki rétta orðið en eitthvað dregur marga til draugaborgarinnar Pripyat. Mynd Pedro Moura Pinhero

Heillandi er ekki rétta orðið en eitthvað dregur marga til draugaborgarinnar Pripyat. Mynd Pedro Moura Pinhero

Þegar er ljóst að áhuginn er til staðar því mörg undanfarin ár hafa ferðamenn skoðað staðinn og nágrenni án tilskilinna leyfa en sökum geislavirkni hafa stjórnvöld hingað til ekki viljað opna formlega á slíkar ferðir.

Leiðarvísir einnar ferðaskrifstofunnar sem býður slíkar skoðunarferðir bendir til að ferðirnar séu ekki alveg hættulausar. Þannig er gerð geislamæling á öllum sem ferðirnar fara tvívegis á leiðinni til og frá. Mælist virknin yfir meðallagi er hætt við allt saman.

Ekki fylgir sögunni hvað merkilegt er við ryðgað kjarnorkuver en öllu merkilegra er skoðunarferð um borgina Pripyat sem er draugaborg í orðsins fyllstu en sú borg var og er næst kjarnorkuverinu þegar slysið átti sér stað. Tugir þúsunda voru flutt á brott á örfáum sólarhringum þegar slysið átti sér stað en það dugði skammt fyrir marga. Fjölmargir þeirra sem urðu fyrir geislun hafa síðan eignast fötluð og vansköpuð börn og margir létust hræðilegum dauða löngu síðar.

Leiki Íslendingum hugur á einni ferð eða svo er hægt að panta hér. Léttur dagstúr kostar ekki nema rúmlega átta þúsund krónur á mann. Krabbamein er aukakostnaður.