Tíðindi

Varasamt í Egyptalandi

  26/01/2011nóvember 21st, 2014No Comments

Svor virðist vera sem mótmæli færist í aukana í Egyptalandi og þá sérstaklega í höfuðborginni Kaíró þrátt fyrir fjölmennt lið lögreglu og hafa nú fjórir einstaklingar látist vegna þeirra að því er fram kemur í erlendum fjölmiðlum.

Eru mótmæli Egypta af sama meiði og íbúa Túnis fyrr í mánuðinum þar sem hundruð þúsunda gengu gegn einræðisherra þess lands. Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, þykir lítt betri en kollegi hans í Túnis og því má búast við að mótmælin og jafnvel óeirðir aukist í landinu á næstunni

Þó ekki hafi orðið uppþot á helsta sumardvalarstað Egyptalands, Sharm el Sheik, né heldur áberandi við píramídana er ekki loku fyrir skotið að svo verði og ráðlegt að bíða með ferðalög til Egyptalands að svo stöddu.