Einhver gæti haldið að einkaeigandi flugfélags þyrfti sirkabát eitt augnablik til að sparka í rass þjónustustjórans til að bæta dapurlega þjónustu. En Skúli Mogensen þarf greinilega nokkra mánuði. Nema auðvitað hann sé bara að þykjast…

Það segir sitt um fólk sem ekki stendur við loforð..
Við hér gagnrýnt hörmungarþjónustu Wow Air frá árinu 2013 og það eina sem við höfðum upp úr krafsinu var að Mogensen varð brjálaður, neitar að tala við okkur og blokkerar Fararheill á samfélagsmiðlum.
Spólum fimm ár fram í tímann og erlendur risamiðill fer að spyrja herra Mogensen út í sömu herfilegu þjónustu og við höfum bent á um margra ára skeið. Mogensen tekur símann og lofar meiri bót og betrun en kerling Jóns við Gullna Hliðið.
Ef Mogensen meinti það sem hann sagði, hvað er þá þetta?






En kannski eru boðskiptaleiðirnar hjá Wow Air lengri en ræður formanns Framsóknarflokksins. Bætt þjónusta eins og að koma fram við fólk af heiðarleika og sanngirni dettur kannski inn á því herrans ári 2020…







