Rúmlega 60 mínútum eftir tilkynningu um sólarhringstilboð Icelandair til Toronto fengust alls engar ferðir á vildarkortakjörum.

Ekkert í boði fyrir bestu kúnnana?

Ekkert í boði fyrir bestu kúnnana?

Verður að teljast afskaplega ólíklegt að milli miðnættis og 01 um nótt hafi fjöldi sæta sem Icelandair fullyrðir að séu frátekin sérstaklega vegna Vildarkorthafa klárast.

Það er hins vegar sú melding sem Icelandair býður viðskiptavinum sínum upp á þegar eftir var leitað á vef flugfélagsins:

Eftirfarandi villa/ur kom upp

  • Athugið :
    Leitin bar engan árangur því öll Vildarsæti uppseld á þennan áfangastað. (66002 [1])

Hið sama var uppi á teningnum fyrir viku þegar sams konar tilboð bauðst til Boston. Gera má að því skóna að Icelandair loki alveg fyrir Vildarklúbbshafa þegar um umrædd tilboð er að ræða en samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins er alls ekki um neinar hömlur að ræða.