Vegir Icelandair eins og Guðs almáttugs; órannsakanlegir. Fyrirtækið sem gerir sig út fyrir að vera Íslands sverð, skjöldur og hjarta, minnist bara alls ekkert á ferðir til landsins á tilboðum sínum.

Icelandair virðist ekki beint vera að koma Íslandi á kort erlendra ferðamanna.
Eitthvað myndi líklega heyrast frá Bretum ef British Airways auglýsti ýmis sértilboð á flugi milli Orlando og Zurich, Boston og Lissabon eða New York og Frankfurt svo nokkur dæmi séu tekin.
Það er nákvæmlega það sem Icelandair er að auglýsa núna eins og sjá má glögglega á tilboðssíðu flugfélagsins í Bandaríkjunum:


Hmmm. Ekki eitt einasta tilboð bara TIL ÍSLANDS jafnvel þó allar flugferðir Icelandair yfir Atlantshafið stoppi á Íslandi!!!
Ágæt hugmynd fyrir lífeyrissjóði landsmanna sem hafa fjárfest í þessu drasli að selja ekki síðar en núna. Íslenskt flugfélag sem ekki hugsar um land sitt og fólk má sigla sinn sjó. Þá ætti ráðherra ferðamála að sekta fyrirtækið um nokkra tugi milljóna. Þó ekki sé nema fá til baka í ríkissjóð það sem Icelandair hefur fengið síðustu árin að gjöf.







