British Airways flýgur ekki hingað til lands enn sem komið er en ef áhugi er á þvælingi um heiminn gæti verið áhugavert að vita að það er útsala hjá flugfélaginu.

Fjöldi tilboða hjá British Airways. Kannski eitt með þínu nafni. Skjáskot

Fjöldi tilboða hjá British Airways. Kannski eitt með þínu nafni. Skjáskot

Næstu þrjár vikur eða svo, til 19. maí, geta áhugasamir bókað flug á sértilboði með BA sem er eitt hið virtasta í veröldinni og þykir með þeim betri.

Bretarnir ekki aðeins að bjóða upp á útsölu á flugi heldur og líka pakkaferðum. Meðal þess sem finnst á vef þeirra er flug fram og aftur milli London og San Francisco niður í 120 þúsund krónur. Flug plús vikudvöl á Barbados í Karíbahafi niður í 105 þúsund krónur á kjaft eða flug plús vika á hinni stórkostlegu eyju Máritíus í Indlandshafi niður í 158 þúsund krónur á mann.

Við erum byrjuð að pakka niður. Hvað með þig 😉 Meira hér.