Allnokkrir fjölmiðlar landsins gert sér mat úr því að forstjóri Úrval Útsýn gagnrýnir hart að flugfélagið Icelandair endurgreiði ekki nokkurn skapaðan hlut þessi dægrin þrátt fyrir að sitja á 40 milljörðum króna. En sömu fjölmiðlar eru að gleyma einu.

Vellauðugur forstjóri Icelandair vill alls ekki endurgreiða plebbunum nokkurn skapaðan hlut. Skjáskot

Það satt og rétt að þrátt fyrir sína 40 milljarða á bók er flugfélagið Icelandair ekki að koma til móts við einn né neinn með endurgreiðslur þó flug hafi verið fellt niður til nánast allra áfangastaða fyrirtækisins. Fyrirtækið vill frekar eyða milljörðum króna í kaup á eigin hlutabréfum en að koma til móts við fólk sem hefur eytt formúgum til að ferðast til Íslands eða áfram með flugfélaginu.

Það út af fyrir sig kjánalegt. Icelandair státar sig af toppfólki í öllum stöðum en það þarf varla að kunna stærðfræði 101 til að vita að þúsundir sem ekki fá endurgreitt þegar flug fellur niður fara prontó á samfélagsmiðla og kvarta sáran. Sumir véla jafnvel til lögfræðinga. Kostnaður Icelandair við það klabb verður miklu meira en að endurgreiða þeim er greitt hafa fyrir þjónustu sem þeir fá svo ekki.

Skítlegt sannarlega enda ekki við öðru af búast þegar milljónamæringar ráða öllu hjá fyrirtækinu. Það fólk orðið ríkt á svindli og svínaríi og ætlar að stunda það áfram á kostnað almennings.

En hvað varðar vælið í forstjóra Úrval Útsýn horfir málið aðeins öðruvísi við. Eigandi ferðaskrifstofunnar er nefninlega stórsvindlarinn Pálmi Haraldsson. Og það sem kemur hvergi fram í greinum fjölmiðla er sú staðreynd að sá sami skíthæll er risastór hluthafi í Icelandair.

Með öðrum orðum: mögulegt tap ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn er hagnaður flugfélagsins Icelandair. Og þar sem sami skíthællinn situr beggja megin borðsins er tapið ekki neitt.