Sólarhring eftir að Plúsferðir auglýstu vikuferðir til Orlando nú 2. október á sérstöku tilboðsverði bætir ferðaskrifstofan Úrval Útsýn um betur með svipuðu tilboði með sama flugi í sama tíma en býður örlítið betra hótel. Um er að ræða ferð dagana 2.-10. október.
Munurinn á tilboði þessara tveggja aðila er enginn nema að ÚÚ býður þriggja stjörnu hótel, International Palms Resort, í Orlando í stað tveggja stjarna hótels sem var í boði í sólarspretti Plúsferða.
International Palms Resort er í 222. sæti af 347 hótelum alls á Orlando svæðinu. Sjá hér.
Reyndar er tilboð ÚÚ tíu þúsund krónum ódýrara ef fjórir ferðast saman því herbergin sem í boði eru í ferð ÚÚ eru fjögurra manna. Þá býðst ferðin á 79.900 krónur á mann.
Það reyndar er kannski örlítið kjánalegt því varla draga margar fjögurra manna fjölskyldur draga börn sín úr skóla á þessum tímapunkti til að nýta tilboð til Orlando. Þá eru vandfundin þau hjón sem eru svo æðislegir vinir að þau deila herbergi í viku.






