Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn er með allt á útopnu. Tilboðskjör á einni síðustu golfferð fyrirtækisins og einnig er verið að slá aðeins af nokkrum sumarferðum ferðaskrifstofunnar til Mallorca, Tenerife, Costa Brava og Almería.

Rúmlega tíu þúsund króna afsláttur á tilteknum sumarferðum Úrval Útsýn þetta sumarið. Skjáskot
Ekki er um stórupphæðir að ræða en þó upp í rúmlega tíu þúsund króna afslátt á mann þegar best lætur. Það gerir rúmlega 40 þúsund krónur á fjögurra manna fjölskyldu og þær eru fáar þarna úti sem ekki munar um það. Hafa skal þó hugfast sem fyrr að gera verðsamanburð milli ferðaskrifstofa því úttektir Fararheill hafa ítrekað sýnt að afsláttarkjör þýða ekki endilega lægsta verð á ferð yfir línuna.
Ein síðasta golfferð ÚÚ sem farin verður eftir nokkra daga er líka á tilboðsverði en þar er um fjögurra daga ferð að ræða með öllu inniföldu niður í 129.900 á mann og ótakmarkað golf á Spáni. Allsæmilegt verð þó fyrirvarinn sé skammur.







