Rúmur mánuður er síðan við sögðum ykkur frá því að fyrstu bandarísku flugfélögin væru í startholunum með beint flug til Kúbu. Nú getur við bætt um betur því fjórum ferjufyrirtækjum hefur verið veitt leyfi til siglinga frá Flórída.

Höfnin í Havana. Þar eru aðstæður ekki til reiðu til að taka móti stórum skemmtiferðaskipum. Mynd Howard Ignatius

Höfnin í Havana. Þar eru aðstæður ekki til reiðu til að taka móti stórum skemmtiferðaskipum. Mynd Howard Ignatius

Fyrst um sinn verður aðeins um ferjuflutninga að ræða milli Bandaríkjanna og Kúbu en um leið og grænt ljós fæst á punktinn í samningaviðræðum landanna er hugmyndin að ferjur og skip geti farið á milli að vild með farþega líka.

Vitað er að stóru skemmtisiglingafyrirtækin eru að undirbúa sig en þar gerist allt á hraða jökla og fáar hafnir á Kúbu geta með góðu móti tekið móti risastórum farþegaskipum. Þess vegna má heita víst að það verða ferjufyrirtæki sem fyrst verða að bjóða siglingu á milli.

Þetta er þó enginn skottúr. Þar sem styst er milli landanna tveggja er vegalengdin 130 kílómetrar. Öllu lengra en frá Miami eða vinsælum skemmtiferðahöfnum við Cape Canaveral til dæmis. Túrinn, jafnvel á hraðferjum, tekur aldrei minna en fjórar stundir og líklega hálfan dag fyrir hefðbundnar ferjur.

Að öðru óbreyttu ætti að vera hægt að fljúga eða sigla til Kúbu frá Flórída án mikillar fyrirhafnar strax á næsta ári.