Þjóðin skiptist sennilega nokkuð í tvennt þegar kemur að aðdáun á hinni belgísku Brussel og á Evrópusambandið þar einhvern hlut að máli. En sé ferð þangað á döfinni er aldrei þessu vant urrandi samkeppni á flugleiðinni næsta sumarið.

Tvö lággjaldaflugfélög?
Það er nokkuð óvenjuleg samkeppni líka því hún er milli Icelandair og Wow Air hvorki meira né minna. Nú hefur Icelandair ekki lengur einkarétt á að flytja ríkisstarfsmenn til erinda í belgísku höfuðborginni og þá er eins og við mann mælt: grimm samkeppni öllum til bóta.
Þetta sést glögglega á meðfylgjandi töflu en þar gerðum við leit að ódýrasta fargjaldi beggja flugfélaga aðra leið til Brussel sumarmánuðina þrjá. Þar sem innrituð taska fylgir með í pakkanum hjá Icelandair var ótækt annað en miða við töskuverð hjá Wow Air líka. Þá kemur í ljós að annaðhvort er Icelandair orðið lággjaldaflugfélag ellegar Wow Air hætt að vera lággjaldaflugfélag.
* Úttekt gerð kl. 21.30 þann 20. mars 2017 hjá báðum aðilum samtímis. Önnur leið til Brussel með innritaða tösku meðferðis. Hafa skal hugfast að fargjöld breytast ört hjá báðum flugfélögum







