Fararheill hefur oft og ítrekað skrifað um þau kjánalegheit flugfélaga, hótela og annarra aðila að bjóða viðskiptavinum sínum upp á svokölluð vildar- og vinakort í stað þess að bjóða lág fargjöld eða verð.

Vildar- og fríðindakort flugfélaga eru algeng og meðal annarra býður Icelandair upp á slíkt. En slíkt viðheldur ekki hollustu viðskiptavina. Mynd Icelandair

Vildar- og fríðindakort flugfélaga eru algeng og meðal annarra býður Icelandair upp á slíkt. En slíkt viðheldur ekki hollustu viðskiptavina. Mynd Icelandair

Upphaflega hugmyndin sú að með því að bjóða „bestu“ kúnnunum extra góð kjör þá myndi viðkomandi aldrei leita neitt annað. En í ljós kemur að þetta trix er í raun og veru ekki að virka.

Þeim er þetta datt í hug á sjöunda áratug síðustu aldar var hylltur sem Hollywood-stjarna í hópi markaðsfræðinga hvers hlutverk það er að selja okkur hluti sem við höfum takmarkaðan eða engan áhuga á. Telja okkur trú um að við séum fallegri, betri eða vinsælli ef við eyðum peningum í að kaupa hitt eða þetta.

En viti menn og konur! Ráðgjafafyrirtækið Deloitte kemst að því í viðamikilli úttekt á hollustu viðskiptavina gagnvart flugfélögum að vildar- og vinaklúbbar eru ekki að virka eins og lagt var upp með.

Í sem stystu máli er það niðurstaða Deloitte að þrátt fyrir að ýmsu sé haldið að fólki af hálfu hótela og flugfélaga hefur það afar takmörkuð áhrif og oft alls engin áhrif. Það líka meira að segja gagnvart þeim sem slíkum vildarklúbbum var sérstaklega stefnt að: ríkari viðskiptaferðalöngum.

Niðurstaða Deloitte er að verð á flugmiða skipti ALLTAF mestu máli hvort sem fólk á þúsundir vildar- eða vinapunkta eða ekki og hvort sem fólk ferðast fyrir hönd fyrirtækis eða í einkaerindum. Stundvísi og öryggi skiptir líka miklu máli fyrir hvern og einn.

Varðandi það hvort vildar-eða vinaklúbbskort hefðu áhrif á gistingu eða flug almennt reynist það ekki vera raunin í flestum tilvikum. Reyndar verður að hafa hér í huga að samkeppni vestanhafs, þar sem könnunin var gerð, er mun meiri en hérlendis. Niðurstaðan samt áfellisdómur yfir slíkum vina- og vildarkortum. Þau breyta litlu þegar upp er staðið fyrir flugfélög eða hótel og eru jafnvel verri en engin því verulegur kostnaður fylgir því að gefa út slík kort eða halda úti slíkum klúbbi.

Eins og Icelandair hefur fundið fyrir eftir að Wow Air kom til sögunnar 😉

Úttekt Deloitte hér.