Sífellt meiri líkindi með Skúla Mogensen og Hreiðari Má Sigurðssyni. Báðir syntu í kampavíni og flóðljósum heimskra fjölmiðla um árabil en enduðu báðir með bremsuför í brók og orðsporið í Sorpu.

Partí sem endaði með ósköpum. Eigandi Wow Air farinn veg allrar veraldar…

Amm. „Snillingarnir” 2018 engu merkilegri en „snillingarnir” árið 2007. Það þrátt fyrir að vitgrannir mektarmenn hafi veitt báðum einstaklingum orður í brjóst sökum óþrjótandi visku og metnaðar.

Raunin hins vegar sú að Hreiðar Már býr nú hjá múttu sinni í Stykkishólmi og herra Mogensen er horfinn af yfirborði jarðar.

Ekki svo að skilja að herra Mogensen sé ekki enn að stýra rellum Wow Air þrátt fyrir að Icelandair hafi keypt hræið á slikk fyrir skömmu. Eftir því sem við komumst næst er Mogensen enn að sýsla í forstjórastólnum þó eigandinn sé annar og nýr.

Eitt allra síðasta trixið hjá Mogensen, sem eini eigandi Wow Air, var að hefja reglubundið flug til Indlands beint frá Íslandi. Það kostaði tugmilljónir króna að lágmarki fyrir bæði flugfélagið og íslenska ríkið því ræðisskrifstofa Íslands á Indlandi var áður í mýflugumynd en áætlanir Wow Air kölluðu á tugmilljóna króna kostnað til að Indverjar gætu komist til Íslands í massavís og þaðan áfram út í heim.

Glöggt fólk man líka eftir því að forráðamenn Icelandair á þeim tíma gáfu líka til kynna að beint Indlandsflug væri í kortunum. Ekkert heyrðist meira af þeim áætlunum. Sem betur fer kannski því EKKERT bendir til þess nú að Indlandsflug Wow Air sé að gera sig eða muni gera sig.

Því til sönnunar þetta:

Skjáskotið hér að ofan er tekið af vef Wow Air þann 14. október 2018. Sem sagt fyrir vel rúmum einum mánuði síðan. Og jómfrúarflug Wow Air til Nýju-Delí á Indlandi hefst í byrjun desember.

Ók, só far só gúdd.

En hvað sést ef við tökum annað skjáskot af ódýrustu flugferðum frá Nýju-Delí til Íslands, Evrópu og Bandaríkjanna núna röskum ÞREMUR vikum fyrir fyrsta flug?

Ert þú að sjá það sem við sjáum?

Hvorki meira né minna en HELMINGUR af auglýstum flugferðum kosta nú MINNA en flugfélagið auglýsti fyrir einum og hálfum mánuði síðan. Ef frá eru taldar ferðir til London hafa aðrir áfangastaðir aðeins hækkað lítillega í verði frá upphaflegum tilboðum Wow Air frá Indlandi.

Með tilliti til að aðeins þarf sex til átta sæti per rellu til að fargjöld hækki um flokk liggur ljóst fyrir nú, þremur vikum fyrir jómfrúarflugið til Indlands, að þetta ferðalag er ekki að gera sig.

Enn ein mistök herra Mogensen og þau kostnaðarsöm.

Á móti kemur að ef þú þolir tólf klukkustunda flug án þess að geta sett niður sætisbakkann vandræðalaust eru til vitlausari hlutir en heimsækja Indland á kostakjörum. Veðrið er vitaskuld margfalt betra en reyndar er loftmengun í Nýju-Delí svo mikil að þú lifir líklega ekki jafn lengi og þú vonaðist til…