Tíðindi

Tóbakið langódýrast hjá Iceland Express

  08/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Eilífar hækkanir vinstri stjórnarinnar á tóbaki hefur komið illa við þá rúmlega 20 þúsund Íslendinga sem enn reykja og í fá hús að venda hvað ódýrt tóbak varðar. Karton af helstu vindlingum fást þó hvergi ódýrari en um borð í flugvélum Iceland Express og er flugfélagið töluvert ódýrara en Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli.

Fæst þannig karton af vinsælum vindlingum um borð hjá Iceland Express á 3.590 krónur sem er gróflega 60 til 70 prósenta afsláttur af verðinu úr næstu sjoppu. Það sem meira er þá býður flugfélagið verulega mikið betur en sjálf Fríhöfnin sem selur karton af helstu vindlingum á 4.290 krónur eða 700 krónum hærra en Iceland Express.