Lengi vel hefur ritstjórn Fararheill bent lesendum sínum á hversu mikla fjármuni má spara á því að skipuleggja eigin ferðalög enda slíkt aldrei verið auðveldara. Ýmislegt bendir til að fólk sé almennt að vakna til lífsins um þetta.

Ekki fyrr lýkur einu tilboði en annað tekur við. Skjáskot

Ekki fyrr lýkur einu tilboði en annað tekur við. Skjáskot

Í nútímaheimi eru ferðaskrifstofur barn síns tíma. Þær geta illa keppt við lággjaldaflugfélög og beinar bókanir gegnum hótelvefi. Hver og einn einstaklingur getur nú verið ferðaskrifstofa og þar með sparað tug- og jafnvel hundruð þúsunda á ferðum sínum eins og við höfum sýnt fram á sýknt og heilagt síðustu árin.

Hér á Íslandi hefur þessi þróun verið hægari en annars staðar. Nýleg frönsk könnun leiddi í ljós að 54 prósent þarlendra skipuleggja sínar ferðir sjálfir og í Bretlandi er prósentan 44 prósent. Sem sagt um helmingur Breta og rúmlega helmingur Frakka græja sín frí án þess að nota til þess milliliði.

Það er þó ekki svo að við séum sein að fatta heldur meira að það er nýlunda að ekki sé fákeppni í flugi til og frá landinu. Sem hefur sannarlega breyst til batnaðar síðustu þrjú til fjögur árin.

Án þess að fullyrða nokkuð enda engin tölfræði til um slíkt þá má leiða líkur að því að fleiri og fleiri séu að græja sín eigin ferðir hér heima. Ekki hvað síst sú staðreynd að ferðaskrifstofur nokkrar hafa linnulítið dælt úr sértilboðum nánast frá áramótum.

Sem dæmi má nefna að Heimsferðir og Úrval Útsýn, stærstu ferðaskrifstofur landsins, buðu strax í desember allt að 20 þúsund króna bókunarafslátt á mann fram í febrúarlok. Það dugði greinilega ekki til því báðar ferðaskrifstofur framlengdu sértilboðið fram til 15. mars.

Ekki fyrr var sá frestur úti en Heimsferðir auglýsa „sumarsmelli“ sem eru sérstök afsláttarkjör á ferðapökkum í sumar. Sumarsmellurinn virðist merkilega keimlíkur 20 þúsund króna bókunarafslættinum. Á meðan er Úrval Útsýn bæði að auglýsa svokallaða „Rauða daga“ þar sem sérstök tilboð eru á ferðum og líka sérstakt „tilboð vikunnar.“

Það hafa sem sagt verið sértilboð á pakkaferðum hjá stærstu ferðaskrifstofum landsins í rúmlega þrjá mánuði linnulaust.

Sem segir okkur að eftirspurnin eftir pakkaferðum sé kannski ekki eins mikil og ferðafrömuðir áttu von á.

[vc_empty_space height=“12px“][vc_basic_grid post_type=“post“ max_items=“9″ item=“basicGrid_SlideFromLeft“ grid_id=“vc_gid:1458256742443-a467bb3f-c3c0-1″ taxonomies=“299, 354″]