Tíðindi

Tilboð til Washington og Costa del Sol

  18/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan Heimsferðir og flugfélagið Icelandair kynntu í dag sértilboð til tveggja áfangastaða. Heimsferðatilboðið sérstaklega er feykigott svo ekki sé meira sagt.

Er þar um að ræða flugsæti til Alicante á Spáni dagsetningarnar 21 og 24. júlí og 11. og 18. ágúst en sæti aðra leiðina kostar aðeins 19.900 krónur og verður ekki betri þessa síðustu og verstu.

Þá á ferðaskrifstofan enn laus sæti til Costa del Sol á Spáni þann 30.júlí í tíu daga ferð á 59.900 krónur. Heimasíða Heimsferða hér.

Icelandair býður í dag sértilboð til Washingtonborgar í Bandaríkjunum en um er að ræða þriggja daga helgarferðir í haust.

Dagsetningarnar eru 15. og 20. september, 20. október og 17. eða 24. nóvember. Kostar hver ferð 82.900 krónur á mann miðað við tvo saman. Heimasíða Icelandair hér.