Tíðindi

Til Köben og heim fyrir rúm 34 þúsund

  10/10/2012febrúar 4th, 2014No Comments

Komist er fram og tilbaka til Kaupmannahafnarmeð Iceland Express fyrir þessi jólin fyrir rétt rúmar 34 þúsund krónur á sértilboðsverði.

Fæst nú ódýrast fargjald héðan og út á 16.900 krónur og heim aftur er komist fyrir 17.403 krónur á allnokkrum dagsetningum í lok nóvember og byrjun desember.

Fyrirtækið hefur enn ekki sett á farangursgjald eins og tilkynnt hefur verið að verði gert og því eru ofangreind verð þau verð sem viðskiptavinurinn greiðir og ekki krónu meira með sköttum, gjöldum og öðrum greiðslum ef frá er talið bókunargjald.

Ekki kemur fram á vef Iceland Express hversu lengi þetta tilboð er í boði né heldur hversu mörg sæti eru í boði.

Heimasíða Iceland Express hér.