Ef þú drífur þig að bóka flug til Stokkhólms í næsta mánuði gætir þú geirneglt flug fram og tilbaka þaðan til sólríkra Grænhöfðaeyja á algjöru brandaraverði.

Grænhöfðaeyjur eru í reynd Kanaríeyjur eins og þær voru áður en fjöldatúrismi hélt innreið sína

Breska ferðaskrifstofan TUI er þessa stundina að bjóða aldeilis fráleitt góð flugtilboð frá Stokkhólmi í Svíþjóð til Boa Vista á Grænhöfðaeyjum í Afríku á tilteknum dagsetningum í næsta mánuði. Hér þarf hraðar hendur og ekki skemmir að við komumst þokkalega til sænsku höfuðborgarinnar fyrir þetta 30-40 þúsund krónur ef ekki er mikill farangur með í för.

Hvað erum við að tala um? Jú, fram og aftur til afrísku eyjanna fyrir svo mikið sem TÍU ÞÚSUND KRÓNUR FRAM OG AFTUR!!!!!!

Það er næstum því besta flugtilboð sem við höfum heyrt um hér á bæ. Ekki bara sökum þess að Grænhöfðaeyjur eru Kanaríeyjur fyrir 40 árum síðan með sól og sælu í massavís án þess að þar séu milljónir annarra ferðamanna öllum stundum. Ekki síður sökum þess að frá Stokkhólmi er flugtími til Grænhöfðaeyja milli átta og níu klukkustunda.

Þetta er sem sagt sextán til sautján stunda flug fyrir TÍU ÞÚSUND KRÓNUR!

Það er brandari í öllu veldi 😉

Nánar hér.