Það virðist vera sem 2007 módelið sé komið á fullt blast í flugheimum. Lúxusbatteríið Emirates lækkar sýknt og heilagt verð á flugi hingað og þangað um heiminn og auglýst verð á tilboði komin langleiðina í flottu tilboðin snemma árs 2008.

Síðustu árin hefur flug fram og aftur til Dúbai frá Englandi kostað 85 til 90 þúsund. Ekki lengur.
Sem er gott fyrir okkur ferðaþyrsta fólkið sem líður illa ef við komumst ekki af spillingarklakanum helst sem oftast.
Óvitlaust að kíkja sem snöggvast inn á vef Emirates sem meðal annars flýgur frá London, Edinborg, Glasgow, Birmingham og Manchester. Allt borgir sem komist er til beint héðan.
Meðal þess sem má hnjóta um þar er flug fram og aftur til Dúbai fyrir 71 þúsund krónur. Flug fram og aftur til Dar es Saalam í Tanzaníu fyrir 91 þúsund krónur. Flug fram og aftur til Ho Chi Minh í Víetnam fyrir 94 þúsund krónur. Og svo framvegis og svo framvegis.
Ekki nokkuð að þessum tilboðum og þar sem við komumst örugglega beint til London tiltölulega ódýrt er þetta kannski sparkið í rassinn sem þú þarft 🙂
Öll tilboð Emirates frá Englandi hér.







