„Lággjaldaflugfélagið“ Wow Air stærir sig af því að bjóða flug aðra leið til London allt niður í fimm þúsund kall án alls. Það bara brandari miðað við lággjaldaflugfélagið Germania en með þeim finnst nú túr aðra leið til Dresden í Þýskalandi fyrir ellefu þúsund kall MEÐ TÖSKU MEÐFERÐIS.

Fleiri áhugaverðir staðir í boði með Germania á næsta ári og á príma verði líka 🙂

Þýska flugfélagið Germania er eitt þeirra flugfélaga sem fljúga til og frá Íslandi og hafa gert í nokkur ár en fáir Íslendingar vita af. Það líklega sökum þess að Germania er ekki mikið að hugsa um Íslendinginn heldur meira um sitt innlenda fólk, ólíkt því sem Wow Air eða Icelandair gera hér heima en bæði setja útlendinginn í fyrsta sætið í einu og öllu.

Sú staðreynd er sallafín ástæða til að versla við Þjóðverjann því ef íslensk fyrirtæki setja okkur í annað eða þriðja sæti mega þau eiga sig með öllu. Eða síðan hvenær hafa Íslendingar notið lægri fargjalda hjá Icelandair og Wow Air en þau flugfélög bjóða reglulega erlendis?

Germania flýgur héðan beint til þriggja áfangastaða í Þýskalandi: Dresden, Bremen og Nurnberg en þó aðeins yfir sumartímann. Þó vissulega eigi allir staðir eitthvað markvert fram að færa er engir þessara þriggja staða heilt yfir að heilla Íslendinginn fram úr hófi.

En hér ber að hafa hugfast að Nurnberg er ekki langt frá Munchen en þangað flýgur Icelandair og heimtar lágmark 40 þúsund krónur fyrir flug fram og aftur ÁN FARANGURS. Þá þarf ekki langa yfirlegu yfir kortum til að fatta að borgin Dresden er tiltölulega miðja vegu milli Berlínar og Prag í Tékklandi. Príma staður til að heimsækja þær báðar og eyða tíma í Dresden líka.

Bara svona hugmynd ef þig langar að ferðast án þess að fylla vasa hjá heimtufrekum Mogensen eða hluthöfum Icelandair.