
Við elskum Amsterdam í einu og öllu. Skjáskot
Allt að gerast í flugheimum um hinn vestræna heim. Allar fregnir benda til að flugfélög heilt yfir séu að vanmeta duglega hversu margir eru búnir að fá nóg af inniveru með maka og börnum og vilja komast á sólríkan bar í Fjarskalandi til að blása almennilega úr nös.
Amsterdam eðli máls samkvæmt státar ekki af sendnum ströndum og sól út í eitt. En góðir barir eru hér í tonnatali, veðurfarið allsæmilegt og heimafólk almennt gott og skemmtilegt. Plús auðvitað að þú getur rúllað góðri jónu á næsta götuhorni vandræðalaust.
Til þessarar ágætu borgar komumst við næstu misserin með Icelandair annars vegar og Transavia hins vegar. Nett úttekt okkar á fargjöldum beggja aðila nokkra mánuði fram í tímann leiðir í ljós að Icelandair er barasta að standast lággjaldasamkeppnina mætavel. Það má glögglega sjá á meðfylgja töflu hér að neðan.
* Hafa bak eyra að fargjöld breytast ótt og títt. Fargjöldin miðast við sardínufarrými án farangurs nema handfarangurs.







