Jú, víst er ferðafólki að fjölga feitt á klakanum þrátt fyrir harmakvein úr öllum landshlutum. Það staðfesta tölur Ferðamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem birtar voru í vikunni. 35 prósenta aukning ferðamanna til Íslands frá síðasta ári. Það er engu að síður brandari miðað við það ríki sem naut hlutfallslegrar mestar aukningar ferðafólks milli ára.

Stórkostleg öll þessi klettahýsi Jórdaníu ekki satt? Nema að þessi tilteknu klettahýsi finnast í Palestínu 😉
Það reynist vera Palestína af öllum þjóðum sem toppar hlutfallslista Ferðamálastofnunarinnar það sem af er árinu.
Þangað hefur ferðafólki fjölgað milli ára um svo mikið sem 58 prósent hvorki meira né minna. Það á sama tíma og ísraelsk stjórnvöld gera sitt besta til að blokkera aðgang að Palestínu.
Ekki svo að skilja að fjöldinn per se sé ógnvænlegur. Allt árið 2016 komust aðeins 600 þúsund erlendir ferðamenn til Palestínu. Það svona á pari við heimsóknir erlendra ferðamanna til Íslands árið 2003 give or take. En 58 prósenta aukning úr 600 þúsund er verulega merkilegt og það ekki síst vegna þess að ólíkt Íslandi er ekki starfrækt fokdýr Palestínustofa í Palestínu sem eyðir tugum milljóna í heimskulegar herferðir á netinu. Svona svipað heimskulegt og forstjóri ÁTVR sem eyddi tugmilljónum króna af skattfé til að brýna fyrir staffinu að selja ekki áfengi til neins undir lögaldri. Staffið svona heimskt eða forstjórinn svona heimskur?
Talandi um ferðamannasprengju þá kemur í ljós að 52 prósent fleiri sóttu Egyptaland heim fyrstu mánuði þessa árs en fyrstu sjö mánuði ársins 2016. Síðan kemur Ísland með tæplega 38 prósenta aukningu milli ára og þar á eftir Túnis og Víetnam.
Allt gott mál. Íslandið góða mun, eins og við höfum alltaf bent á, alltaf heilla aðdáendur fallegrar náttúru svo lengi sem falleg náttúra fær að njóta sín. Hatt ofan líka fyrir þeim sem heimsækja Palestínu nú þegar skóinn kreppir þar sem aldrei fyrr og ekki síður fyrir að heimsækja Egyptaland og Túnis þó bæði lönd hafi orðið fyrir hryðjuverkum misyndismanna síðustu misseri.
Listi SÞ hér í heild sinni. Og í guðanna bænum hættið að taka mark á þessum hræðilegu fréttum frá austur, vestur, norður, og suðurlandi þess efnis að þar sjáist varla ferðamaður með peninga lengur. Það er ekkert annað en lýgi.







