Forráðamenn Boeing eru með feita og dökka rönd í buxum eftir tvö alvarleg flugslys sem kostuðu hundruðir lífið. En sömu forráðamenn virðast með skítinn fastan í buxunum því nýjustu fregnir herma að flugvélaframleiðandinn reiði sig á verkfræðinga með 1200 kall á tímann til að ráða bót á vandamálinu.

Flugstjórnarklefi Max-8 véla Boeing. Ekki allir með allt á hreinu þar.
Úffff! Langt er fallið fyrir þennan risa í flugheimum. Löngum selt áreiðanlegri rellur en allir aðrir framleiðendur en svo ákváðu forsvarsmenn að greiða sífellt feitari arð til hluthafa á kostnað sinnar eigin verkfræðideildar. Skömmu síðar hrapa tvær glænýjar þotur til jarðar með hörmulegum afleiðingum.
Dooooohh!
Of langt mál að fara út í ofurruglið varðandi Max-þotur Boeing hér. Sömu þotur og flugfélagið seldi sem brilljant nýjung án þess að flugmenn þyrftu að læra eitt né neitt aukalega. Nýjung sem svo kom í ljós að var með mjög alvarlega galla í stjórnkerfi. Eða hvaða flugfarþegi andar rólega vitandi að tölvur geta tekið stjórnina af flugmönnum sísona?
Forráðamenn Boeing lofuðu bót og betrun í grænum hvelli en nú hefur fréttastofa Bloomberg komist að því að Boeing hefur ráðið tugi Indverja til að ráða bót á hugbúnaðarvandamáli Max-vélanna.
Ekkert að Indverjum per se en Boeing líklega ekki viljað punga út fyrir bótum því samkvæmt fregn Bloomberg eru Indverjarnir sem eiga að koma Max-vélum Boeing á réttan kjöl með heilar 1200 krónur á tímann!!!!
Þó laun á Indlandi séu vel undir því sem gerist í vestrænum löndum er óhætt að gefa sér að engir stórkostlegir þarlendir tölvufræðingar sætti sig við slík smánarlaun í vinnu fyrir risafyrirtæki. Sem bendir til þess að Boeing sé enn og aftur að fara Krísuvíkurleiðina til að komast til Grindavíkur.
Enginn hér á ritstjórn ætlar nokkru sinni að fljúga með Max-vélum Boeing. Hvað um þig?







