Tíðindi

Þrjár tilboðsferðir Wow Air

  29/04/2012janúar 27th, 2014No Comments

Flugfélagið Wow býður nú til miðnættis í kvöld sértilboð til þriggja evrópskra borga. Er þar um að ræða Varsjá, Kaupmannahöfn og Köln og þó sætaframboð sé takmarkað gildir þetta um flug í allt sumar.

Fæst önnur leiðin á 11.900 krónur á meðan á tilboðinu stendur en nú eru aðeins rúmur mánuður þangað til vélar þessa nýjasta flugfélags Íslendinga hefja sig til lofts.

Ekki kemur fram hversu takmarkað sætaframboðið er en athugun Fararheill leiðir í ljós að það gildir í allt sumar. Til baka er komist á ágætu verði líka. Til dæmis finnst far til Keflavíkur frá Köln á 10.693 krónur og því komist fram og aftur fyrir 22.573 alls. Yfir því er ekki hægt að kvarta á þessum síðustu og verstu.

Þetta veitir áhugasömum tækifæri til að bóka ódýrt flug til Kaupmannahafnar yfir Hróarskelduhátíðina sem hefst í byrjun júlí. Þar stíga á stokk ekki minni töffarar en Bruce Springsteen svo aðeins einn sé nefndur.

Varsjá er vitaskuld einn aðalstaðurinn fyrir knattspyrnuáhugafólk en í Póllandi og Úkraínu fer fram Evrópukeppnin í knattspyrnu í sumar. Ódýrt flug þýðir meiri peningar aukreitis fyrir ískaldan bjórinn.

Köln er fjölsótt af ferðafólki og ekki af ástæðulausu enda litrík og skemmtileg. Príma staður til að valsa um í allar mögulegar áttir ef borgin sjálf heillar lítið en hættan á því er engin ef þú ert á annað borð með lífsmarki.