Okkur er tjáð að fáar golfferðir njóti meiri vinsælda en þar sem gist er og spilað á hinum fallega Montecastillo golfvelli í Jerez á Spáni. Nú er hægt að grípa allverulega gott tilboð á þeim bænum.
Golfferðamiðillinn Yourgolftravel er nú að selja magnaða pakka á Montecastillo en þar aðeins gisting og golf í boði svo fólk verður sjálft að koma sér á staðinn ef það er ekki nú þegar á vappinu við Jerez. Díllinn er þrjár nætur með morgunverði plús þrír hringir á flottum vellinum fyrir heilar 19.500 krónur miðað við gengi dagsins.
Það er ekkert minna en stórgott tilboð en eins og alltaf fylgir hængur og böggull skammrifi. Í þessu tilfelli er mínusinn, ef mínus skyldi kalla, sá að tilboð þetta gildir aðeins í desember. Það er sem sagt lágannatími.
Nú fussar einhver og sveiar kannski en það er engin ástæða til. Meðalhitastig í Jerez í desember er þrettán gráður. Sem virðist ekki hátt en er ósköp hefðbundið sumarhitastig á Íslandi. Sem aftur þýðir að það eru kjöraðstæður til golfiðkunar. Ekki of heitt og ekki of kalt.







