E ftir því sem við komumst næst er umhverfisráðherra landsins, og margir aðrir, spenntir fyrir að setja typpi í rass annars lagið. Hér þrjú lönd sem ráðherrann ætti ekki að heimsækja á næstunni.

Gleðigöngur í Kólómbíu eru jafnan ekki dúndurstuð og skemmtilegheit. Skjáskot

Samkynhneigðir ekki velkomir alls staðar á hnettinum eins og Fararheill hefur fjallað um ítrekað áður.

Kossaflens eða knús tveggja einstaklinga af sama kyni opinberlega þykir hneisa dauðans á merkilega mörgum stöðum árið 2021. Slíkt getur þýtt feita fangelsisvist og jafnvel verið hrein og bein dauðasök hjá allra trúuðustu þjóðum.

Þrír staðir skera sig þó duglega úr á heimsvísu fyrir þá sök að 89 prósent alls alvarlegs ofbeldis gagnvart samkynhneigðum á sér stað þar samkvæmt gögnum. Svo mjög reyndar að ár hvert eru 1500 samkynhneigðum einstaklingum misþyrmt og þeim ráðinn bani bara í þessum þremur löndum.

Hver eru umrædd lönd?

Jú, Kólombía, Mexíkó og Hondúras í norður- og miðhluta Ameríku.

Hondúras kemur ekkert á óvart. Þar eru Jón og Gulla meðalmenn drepin að einvers gamni á fimm mínútna fresti. Í heittrúuðu Mexíkó þykja morð almennt lítt tiltökumál og yfirvöld í Kólombíu ekkert mikið að gera veður út af af líki samkynhneigðs.

Á hinni yndislegu eyju Barbados er mjög illa séð að fólk halli sér að sínu eigin kyni. Morð og pyntingar algeng.

Í öllum þremur löndunum finnast sérstök lög gegn samkynhneigð en vandamálið er líklega meira mikil macho-menning heimamanna. Í öllum löndum ráða eiginmenn öllu sem ráða skal og þeirra orð eru lög hvað sem kerla segir. Hver sá eða sú sem sést á almannafæri í dúlleríi með kynbróður eða kynsystur er því sem næst réttdræpur.

En það eru fleiri lönd heims þar sem önnur hneigð en gagn er litin hornauga svo um munar. Í Nígeríu eru hommar og eða lesbíur drepin á hverjum einasta degi. Í Katar í Miðausturlöndum er samkynhneigð formlega fordæmd og viðurlögin að lágmarki þriggja ára fangelsisvist, hýðing á almannafæri og í alvarlegustu tilvikum hrein og bein dauðarefsing. Sömu sögu má segja um Sádí-Arabíu. Þar eru beinlínis lög sem heimila dauðarefsingar til handa öllum þeim er sýna sama kyni atlot á almannafæri.

Engin lög eru gegn samkynheigð í Tansaníu en þar eru hommar eða lesbíur undantekningarlítið tekin alvarlega fyrir ef upp um kemst. Myndbönd til af samkynhneigðum dregin af jeppum um stræti og torg þangað til lífið murkast úr þeim.

Kannski eru merkilegustu staðirnir karabísku eyjurnar Barbados og Grenada sem alla jafna reiða sig á bandaríska ferðamenn til að styðja við takmarkaðar auðlindir eyjanna. Samkynhneigðir umsvifalaust teknir í karphúsið á báðum eyjum af heimafólki og yfirvöld á báðum eyjum hafa opinberlega hafnað samþykktum karabískra eyja um virðingu gagnvart samkynhneigðum ferðamönnum.