Þ rjár vikur í sæluna í Cancún, Marrakesh, Chiang Mai, Dusseldorf, Sao Paulo, Manítóba eða Shenzhen og þú getur ekki beðið. En þú getur tekið pínu forskot á sæluna.

Hvaða stuðmúsík er á toppnum á Jamaíka eða Í Grikklandi? Auðvelt að komast að því. Skjáskot

Það gerirðu með tónlist þess staðar eða lands sem þú ert á leið til eða dreymir um að heimsækja. Hvernig er stemmarinn á áfangastaðnum?

Besta leiðin til að finna það út er að vappa um útvarpsstöðvar svæðisins því tónlist er víða merkilega staðbundin og ekkert kemur fólki í rétta gírinn en heyra tungumál og stuðmúsík þess staðar sem hugur stendur til.

Slíkt aldrei áður verið jafn einfalt og nú með tilkomu hinna ýmsu viðbóta, appa, í símann og eða tölvurnar. App á borð við Radio FM sem við hér notum mikið og geymir ekki nema 30 þúsund útvarpsstöðvar um víða veröld.

Hundrað prósent leið til að komast aðeins fyrr á staðinn þó ekki sé nema í huganum 😉