Þrátt fyrir nokkur stórslys í flugi á síðasta ári reyndist 2014 samt sem áður öruggasta ár í bransanum frá upphafi samkvæmt tilkynningu frá Alþjóðasamtökum flugfélaga IATA.

Færri slys á síðasta ári en nokkru sinni áður þrátt fyrir allt.

Færri slys á síðasta ári en nokkru sinni áður þrátt fyrir allt.

Samkvæmt tölum samtakanna mældist slysa í flugi árið 2014 vera 0.23 per milljón flugferða og sú tala aldrei verið lægri. Skráð alvarleg slys eða flugatvik sem ollu tjóni það árið reyndust alls 73 talsins og þar langstærst tvö alvarleg atvik hjá Malaysia Airlines sem öllum ætti að vera kunnugt um. Alls létust 641 einstaklingur í flugslysum á liðnu ári.

641 einstaklingur er 641 einstaklingi of mikið en engu að síður frábær árangur og færir heim sanninn um að flug er mikið öryggari ferðamáti en til dæmis að keyra um í bifreið.