Flugfélög heimsins þora ekki fyrir sitt litla leyti að taka á því en það er sannarlega undarlegt nú þegar hvert og eitt kíló farangurs kostar okkur öll aukalega að selja sæti á sama verði hvort sem fólk er 70 kíló eða 120 kíló.

Fólk í yfirvigt tekur gjarnan meira pláss en fólk sem er ekki í yfirvigt. En flugfélögum er sama. Skjáskot
Hvað flugferðir varðar liggur kristaltært fyrir hver er fíllinn í herberginu þó enginn þori að nefna. En minnst einum aðila, Þórarni, er alls ekki sama og sá sendi okkur meðfylgjandi skeyti nýlega.
„Flaug til Mílanó nýlega með íslensku flugfélagi. Vélin var algjörlega fullbókuð og því vonlaust að fá að skipta um sæti eins og ég óskaði eftir í upphafi flugsins til Ítalíu.
Ástæða þess að ég óskaði eftir öðru sæti sú að í miðjusætinu við hliðina á mér sat einstaklingur sem verður alls ekki lýst öðruvísi en sem offitusjúklingi. Mjög feitur karlmaður.

Fáir feitari en Íslendingar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. En þeir greiða ekkert meira en aðrir fyrir flugsæti. Skjáskot Kjarninn
Ekkert á móti fólki í yfirvigt en þessi aðili var svo breiður og sætin þröng að hann tók pláss bæði frá mér við gluggann og ungri, bandarískri konu við ganginn. Stúlkan var afar kurteis og lét á engu bera en ég lét manninn heyra það strax fyrir flugtak að hann væri helst til mikið að að troðast yfir í mitt sæti og þar með minnka það litla pláss sem ég hafði og allt fólk sem hefur flogið er með lággjaldaflugfélögum þekkir að ekki er plássið mikið. Þar ekki á það bætandi.
Viðkomandi var alls ekki með nein leiðindi og baðst strax afsökunar en þótt hann reyndi að troða sér saman eins og hann gat þá náði hann samt vel yfir á mitt sæti í fluginu. Aldrei áður hef ég eytt svo miklum tíma í flugi á ganginum því þó ég væri fyrir öðrum hverjum manni sem ætlaði á klósettið þá leið mér betur standandi en í hálfu sætinu við gluggann.
Ég forvitnaðist á leiðinni hvað maðurinn hafði greitt fyrir flugið og í ljós kom að hann greiddi það sama og ég hafði gert. Báðir með eina innritaða tösku og sæti á almennings farrými til Mílanó.
Mér leikur mikil forvitni á að vita hvort það sé eðlilegt eða löglegt að ég, 76 kíló að þyngd, greiði það sama fyrir sætið og maður sem er kringum 100 kíló að þyngd. Ég að minnsta kosti 20 kílóum léttari en umræddur sessunautur minn í þessu flugi og það kostaði mig tæpar sex þúsund krónur að innrita 20 kílóa tösku meðferðis. Hvers vegna kostar sætið samt hið sama? Er það ekki þyngd vélarinnar sem telur þegar kemur að eldsneytiskostnaði?
Finnst þetta mjög ósanngjarnt og flugfélagið vildi ekkert fyrir mig gera þegar ég forvitnaðist. Kannski þið á Fararheill getið varpað ljósi á málið.
Þórarinn xxxxxxxx”
Illu heilli getum við hér ekki varpað frekara ljósi á málið því ekkert flugfélag þorir að taka á þessu. Ef allt væri eðlilegt undir sólinni ætti feitlagið fólk klárlega að borga hærra verð fyrir flugsætið en þetta er afar viðkvæmt og Íslendingar fjarri því eina fólkið þar sem offita er stórkostlegt vandamál.
Að því sögðu er að sjálfsögðu kjánalegt að heimta fleiri þúsund krónur fyrir 20 kílóa töskudruslu en láta alveg hjá líða að rukka feitlagna eftir líkamsþyngd. Því munurinn á þessu tvennu er enginn. Meiri þyngd þýðir meira eldsneyti á flugi og engu skiptir hvort sú þyngd er á töskudruslu eða fólkinu sjálfu.







