Fyrir tíu árum eða svo máttu ósáttir flugfarþegar að mestu klóra sér til blóðs í kollinum ef eitthvað bjátaði á enda flugfélög almennt lítið að sinna fólki eftir að greiðsla hafði borist og opinberar stofnanir eins misjafnar og þær eru margar. Síðan þá hafa lögfræðifyrirtæki sem eingöngu starfa fyrir fúla farþega sprottið upp hraðar en gorkúlur á skítahaug.

Ágæt þjónusta áður en greiðsla berst hjá íslensku flugfélögunum en eftirá allt í tómu tjóni.
AirHelp, Flightright, Claim Compass, MyFlightDelayed, Skycop, RefundMe og AireClaim svo aðeins sjö slík fyrirtæki séu nefnd til sögunnar. Ekkert þeirra eldri en átta ára. Það er sem sagt risabisness að tryggja súrum og ósáttum farþegum þær bætur sem fólk á hugsanlega rétt á þegar eitthvað stenst ekki loforð.
Hér heima erum við reyndar svo heppin að eiga stofnun, Samgöngustofu, sem hefur næg völd til að leita réttar okkar fyrir okkar hönd ef við erum súr með eitthvað vegna flugferða. Það kostar ekkert að skjóta málum þangað og undantekningarlítið fást bætur greiddar á endanum ef krafa er eðlileg. Þó með þeim fyrirvara að málalok geta tekið nokkra mánuði og jafnvel lengur.
Ofangreind fyrirtæki reyna að sinna sama hlutverki og flest hver gera það afar vel jafnvel þó ekki sé um opinbera stofnun að ræða. Fólk fær afgreiðslu strax og ef krafan er ekki byggð á sandi fást bætur yfirleitt greiddar á nokkrum vikum. Mínusinn hins vegar sá að fólk greiðir fyrir þjónustuna. Yfirleitt ekki minna en 25 prósent af hugsanlegum bótum og í tilfellum helming allra bóta sem nást í hús.

Hér má gera töluvert betur ekki satt? Listi ClaimCompass
Mörg þessara fyrirtækja halda vel utan um alla tölfræði vegna krafna fólks og sum taka þær upplýsingar saman endrum og sinnum og birta opinberlega. Þannig varð Wow Air versta flugfélag heims samkvæmt gögnum AirHelp á síðasta ári.
Nú hefur ClaimCompass birt sinn tossalista sem nær til 71 flugfélags á heimsvísu. Og þó ekki komi á óvart að Wow Air er það lágt á blaði kemur í ljós að Icelandair er ekki að standa sig neitt betur.
Skömm að því og varla til þess fólgið að auka ferðamannastraum til landsins.







