Sjálfskipað stundvísasta flugfélag Íslands er ekki lengur stundvísasta flugfélag Íslands. Það stendur sig reyndar verst allra helstu flugfélaga sem hingað fljúga til og frá samkvæmt tölfræði Dohop og meðaltafir hvorki meira né minna en rúmar 30 mínútur.

Það verður að standa við stóru orðin. Ella tekur enginn mark á þér. Mynd Rúv/Dohop

Það verður að standa við stóru orðin. Ella tekur enginn mark á þér. Mynd Rúv/Dohop

Nánast frá upphafi hefur Wow Air gert mikið úr stundvísi félagsins og auglýst það villt og galið við hvert tækifæri. Í sjálfu sér óvitlaust því enginn elskar hangs á flugvöllum lengur en brýn þörf er á og stundvísi skiptir sannarlega máli. En það verður að standa við stóru orðin. Ekki stundum heldur alltaf.

Reyndar setti Fararheill alltaf spurningarmerki við þetta mont þeirra Wow manna eins og lesendur vorir vita. Það er jú ívið auðveldara að vera á tíma þegar tvær til þrjár vélar eru í flugflotanum í samanburði við tug þotna helsta samkeppnisaðila.

Þessu tengt er óhætt að hafa hugfast að farþegavélar teljast EKKI seinar ef lent er eða tekið á loft innan 15 mínútna frá áætluðum komu- eða brottfarartíma. Það er því óhætt að bæta fimmtán mínútum ofan á þær tölur sem hér koma fram.

Ojæja. Það er allavega huggun harmi gegn að geta bókað flotta gistingu á lægra verði en gengur og gerist hér að neðan.