E inhver allra bestu vín sem framleidd eru á Ítalíu koma frá brennheitum hæðum Campaníahéraðs í og við Napolí. Almennt þykja þau bragðsterkari og dýpri en sams konar vín frá hæðum annars staðar í landinu. Eitt sérstaklega hefur lengi notið gríðarlegra vinsælda meðal íbúa í Campania: Tár Krists.

Eina virka eldfjallið á öllu meginlandi Evrópu skapar glæsilegt baksvið fyrir Napolí.

Eina virka eldfjallið á öllu meginlandi Evrópu skapar glæsilegt baksvið fyrir Napolí.

Tár Krists heitir eitt allra sérstakasta vín sem hér er framleitt og fá má á velflestum veitingastöðum Napolí og víðar sé eftir því spurt. Á frummálinu er nafnið Lacrima Christi del Vesuvio að viðbættu Rosso (rautt) eða Bianco (hvítt) eftir lit.

Einhverjum þætti kannski undarlegt að jafn guðhrætt fólk og kaþólskt og býr í Napolí skuli leggja nafn Krists við slíkan hégóma sem áfeng vín en nafnið á sér uppruna í gömlum sögnum þess efnis að þegar Kristur á himnum hafi verið að virða heiminn fyrir sér hafi honum svo fundist mikið til um fegurð Campania héraðs að hann hafi grátið beiskum áfengum tárum. Þar hefurðu það.

Einn fróðleiksmoli af mörgum sem þú finnur í vegvísi Fararheill um Napolí.