Hafa ber varann á sér áður en fólk kaupir jólagjafabréf þau er flugfélögin Iceland Express og Icelandair auglýsa nú sem frábæra gjöf um jólin. Ýmislegt kemur nefninlega fram í skilmálum þeirra gjafabréfa sem vert er að hafa í huga.
Fyrst og fremst er þeim ekki hægt að skila eða skipta á nokkurn hátt og til að þau nýtist verður að fara ferðir innan þriggja mánaða. Þá renna slík bréf út án þess að nokkuð komi í staðinn.
Hjá Iceland Express er hægt að kaupa gjafabréf til Evrópu fyrir 25.900 og til Bandaríkjanna fyrir 49.900 krónur. Bóka þarf fyrir 1. febrúar ef nýta á gjöfina að fullu því eftir 1. febrúar breytist gjafabréfið í inneign og rýrnar um leið enda alla jafna engar ferðir fram og til baka á því verði sem býðst fram að þeim tíma.
Fólk sem fær slíka gjöf hefur því aðeins rétt rúman mánuð til að ákveða stað og bóka en þá er ekki öll sagan sögð. Enginn forgangur er fyrir gjafakorthafa og þannig er sætaframboð þegar greitt er með slíku takmarkað. Verst er kannski að fara verður slíka ferð á næstu þremur mánuðum eða fyrir 13. apríl. Páskaferðina er til dæmis ekki hægt að greiða með jólagjafabréfi Iceland Express. Að síðustu rennur kortið eða inneignin út að tveimur árum liðnum.
Þetta er enn verra hjá Icelandair. Nýta verður kortið og fara í ferð fyrir 15. apríl en eftir það breytist gjöfin í inneign og sú inneign rennur út að ári liðnu. Þá er ekki hægt að gefa ættingjum erlendis slíka gjöf því jólapakkaferð verður að hefjast á Íslandi. Þá er heldur ekki hægt að breyta jólapakka í vildarpunkta.
Tilboð Icelandair eru á 29.900 til Evrópu og frá 54.900 til Bandaríkjanna.






