Tíðindi

Loka ströndum Sharm el Sheikh vegna hákarlaárása

  05/12/2010september 30th, 2014No Comments

Vinsælustu ströndum Egyptalands við Sharm el Sheik í Rauðhafinu hefur verið lokað eftir að þýskur ferðamaður lést eftir hákarlaárás. Fyrr í vikunni urðu fjórir aðrir ferðamenn fyrir árásum en lifðu af.

Höfðu yfirvöld þegar opnað strendurnar aftur eftir að hafa fundið og aflífað tvo hákarla sem taldir voru hafa ráðist á þrjá Rússa og einn Úkraínumann í byrjun síðustu viku. Ekki vildi betur til en þýsk kona lést eftir árás örskömmu eftir opnunina.

Er þetta í fyrsta sinn sem hákarlar verða til vandræði á þessum vinsælasta áfangastað ferðamanna í Egyptalandi þó krökkt sé af þeim í Rauðahafinu. Er ekki vitað hvers vegna þeir hafa tekið upp á því að ráðast á fólk en ýmsar kenningar þó í gangi. Ein er sú er æti í Rauðahafinu sé einfaldlega orðið of lítið og því leiti hákarlarnir lengra upp að landi en áður.

Rannsókn stendur yfir en á meðan er fátt spennandi við ferðalög þangað.