
Hinn fallegi staður Chiang Mai verður unnt að heimsækja strax með haustinu.
Ferðamálaráðherra Tælands tilkynnti þetta í vikunni en sagði jafnframt að með því væru stjórnvöld að taka meðvitaða áhættu því enn hafa aðein fimm prósent landsmanna verið bólusettir gegn Covid-19 þegar þetta er skrifað.
Áhættan er meðvituð sökum þess að vel yfir 20% af árlegri þjóðarframleiðslu Tælands kemur frá ferðafólki og lokanir og takmarkanir síðasta árið hafa valdið skelfilegum búsifjum hjá milljónum sem í geiranum starfa. Til marks um það hefur til dæmis veitingahúsum á vinsælum stað eins og Pattaya fækkað um rúm 40 prósent enda ekki allir eigendur með djúpa vasa og enduðu í gjaldþroti. Það er með öðrum orðum orðið of dýrt fyrir landið að hafa allt lokað þó fáir heimamenn séu bólusettir.
Galopnun merkir að allir erlendir ferðamenn sem koma til landsins frá miðjum október geta frjálst um höfuð strokið innan landamæra Tælands og þurfa hvorki að fara í sóttkví né taka neins konar próf.







